„Búið að skemma sálina í manni“

Börnin hrædd eftir innbrot: „Þora ekki að vera einar og víkja ekki frá mér“

„Þetta er búið að skemma sálina í manni,“ segir Áslaug Ósk Hinriksdóttir í samtali við DV en hún varð fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynslu á föstudaginn að koma að íbúðinni sinni eftir að brotist hafði verið inn í hana. Hún segir að henni sé sama um hlutina sem þeir tóku en erfiðara sé að horfa upp á dætur hennar óttaslegnar. Áslaug skrifar í löngum pistli á bloggsíðu sinni um þessa lífsreynslu, en þar segir hún meðal annars að innbrotsþjófarnir hafi stolið öllu steini léttara.

Eins og fjallað hefur verið um í DV brutust þrír menn inn í íbúð í Norðlingarholti fyrir hádegi á föstudag, og voru þeir í kjölfarið handteknir. Þar var um að ræða íbúð Áslaugar. Margir kannast eflaust við Áslaugu en hún hefu í fjölmörg ár skrifað um baráttu dóttur sinnar við krabbamein á þessari sömu bloggsíðu. Í samtali við DV segir hún erfiðast að horfa á hvernig innbrotið hafi komið við börnin: „Stelpurnar sem eru 8-10 ára gamlar þora ekki að vera einar og víkja ekki frá mér. Þær þora ekki út. Eru hættar að borða.“ Hún segir að það muni taka þau þónokkurn tíma að jafna sig á þessu. „Þetta er bara búið að eyðileggja fyrir okkur, það mun taka einhvern tíma að jafna sig, sérstaklega fyrir börnin mín.“

Í lýsingu sinni af atburðinum á blogginu segir Áslaug meðal annars: „Það hafði verið brotist inn til okkar, lyfin hennar Þuríðar minnar voru útum allt, herbergið okkar Skara var hrikalegt, búið að fara inní alla skápa, henda öllu útum allt og stela ÖLLU sem hægt var að stela nema sjónvarpinu þar sem það var væntanlega of þungt fyrir þá.“

Þá segir hún aðkomuna að íbúðinni hafa verið hrikalega. „Ég gat ekki verið inní henni og bíð útí garði eftir Skara mínum og sé þá löggurnar útum allt hverfi þar sem þeir voru búnir að brjóstast inní fleiri íbúðir í sveitinni.“ Segir hún að fjölskyldan hafi nýlega verið byrjuð að bera út Morgunblaðið en þeim peningum sem þau fengu fyrir það ætluðu þau að safna í sjóð fyrir næsta sumar, til að fara eitthvað saman. „Ég sé enganveginn frammá að ég þori að vera ein úti á næstunni, þeir hafa rústað "öllu".“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.