Staða fjárfestingarfélagsins Milestone var orðin það slæm á fyrri hluta árs 2008 að fjármálastjóri félagsins, Arnar Guðmundsson, lýsti henni sem einu „stóru núlli“ í tölvupósti til forstjóra félagsins, Guðmundar Ólasonar, í maí það ár. Þá hafði Milestone gert árangurslausar tilraunir til að endurfjármagna félagið frá því um sumarið 2007 með því leita til tuga fjármálafyrirtækja eftir lánafyrirgreiðslu. Enginn vildi hins vegar lána Milestone peninga nema Glitnir og Sjóvá, sem Milestone átti að fullu eða hluta. Á þessum tíma var orðið ljóst að Milestone, sem var í eigu Karls Wernerssonar, var komið í verulega rekstrarerfiðleika.
Um þetta er fjallað í skýrslu sem ráðgjafafyrirtæki í eigu tveggja fyrrverandi starfsmanna sérstaks saksóknara, Jóns Óttars Ólafssonar og Guðmundar Hauks Gunnarssonar, vann um gjaldþol Milestone fyrir þrotabú félagsins.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013