Obama sagði brandara um munnmök

Sposkur forseta gerði grín að eiginkonu sinni

Svo virðist sem Barack Obama Bandaríkjaforseti hafi í ræðu sinni á góðgerðasamkomu í Los Angeles á miðvikudagskvöldið vísað til hæfni eiginkonu sinnar til munnmaka. Þá sagði hann afar tvíræðan brandara um armbeygjur og uppskar mikil hlátrasköll. Blaðamenn sem voru á staðnum hafa í greinum bent á að í þeirri útgáfu ræðunnar sem birst hafi opinberlega á netinu hafi orðalaginu lítillega verið breytt.

„Fer ekki alveg niður“

Forsaga málsins er sú að Michelle Obama forsetafrú var gestur Ellen DeGeneres í vinsælum sjónvarpsþætti í febrúar. Þar skoraði hún á DeGeneres í armbeygjukeppni og hafði forsetafrúin betur.

Forsetinn gerði þetta atvik að umtalsefni í ræðu sinni á miðvikudagskvöld. Hann sagði að eiginkonan væri líka betri en hann í armbeygjum. Hann gerði því næst andartaks hlé á ræðunni og sagði svo hægt, sposkur á svip: „Því hún fer ekki alveg niður (e. because she doesn‘t go all the way down“, í nútíð).

Kynferðislegur undirtónn

Við þetta uppskar hann mikinn hlátur í salnum. Fréttaleitandi blaðamenn voru fljótir að grípa þetta á lofti og þeim ber saman um að augljósan kynferðislegan undirtón hafi mátt greina á orðum forsetans hrekkjótta. Í það minnsta mikla tvíræðni. Þess vegna hafi brandarinn slegið í gegn. Blaðamaður á Dallas Morning News segir að ef til vill sé þetta í fyrsta sinn sem forseti Bandaríkjanna grínist með munngælur forsetafrúarinnar. Líklega er það rétt. „Ég ætla rétt vona að @Michelle Obama láti @Barack Obama heyra það í kvöld. Eða allavega láti armbeygjurnar eiga sig,“ skrifaði Meredith Shiner, blaðamaður hjá Roll Call, um atvikið á Twitter.

Engin svör úr Hvíta húsinu

Eins og segir að framan er útskrift ræðunnar á vef Hvíta hússins ekki nákvæmlega eins og forsetinn flutti hana. Þar stendur að Ellen haldi því fram að Michelle hafi ekki farið alla leið niður í armbeygjum sínum (e. „but I think she claims Michelle didn‘t go all the way down“), í þátíð). Á þessu er dálítill munur.

Blaðamenn vestanhafs, sem voru á umræddri samkomu velta því fyrir sér hvort forsetinn hafi, í hita leiksins, ákveðið að breyta ræðunni sinni eða hvort sá sem setti ræðuna á vef Hvíta hússins hafi ritskoðað hana lítillega. Svar við því hafa þeir ekki fengið frá Hvíta húsinu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.