Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:24 › 10. júní 2012
Lítill fólksbíll valt út af veginum um Skeiðarársand, skammt vestan Gígjukvíslar, rétt fyrir klukkan sex á laugardagskvöld. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum þegar hann ók í ösku sem hafði safnast saman á veginum. Vegagerðin var látin vita og öskunni var rutt burt.
Tvær konur voru í bílnum. Þær sluppu ómeiddar en bíllinn er talinn ónýtur. Konurnar voru erlendir ferðamenn. Lögreglan á Hvolsvelli hvetur fólk til að vera vakandi og láta vita ef það keyri fram á ösku sem hafi safnast saman á vegi. Að aka í ösku sé ekki ósvipað því að lenda í lausamöl.

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi