Ungur maður á þrítugsaldri var handtekinn að kvöldi föstudags við Urðarholtið í Mosfellsbæ. Maðurinn var einungis klæddur í bol og nærbuxur þegar hann var leiddur út í lögreglubíl, að sögn sjónarvotta. Fjórir lögreglubílar voru fyrir utan húsnæði mannsins í dágóðan tíma og þar á meðal bifreið rannsóknarlögreglunnar. Varðstjóri lögreglunnar í Krókhálsi verst allra frétta og vísar á rannsóknarlögregluna. „Ég get ekkert sagt um málið að svo stöddu, þetta er á afar viðkvæmu stigi.“
DV hefur óstaðfestar heimildir fyrir því að handtaka mannsins tengist handtöku þriggja annarra manna á föstudag, sem brutust inn í íbúð í Norðlingaholti í rétt fyrir hádegi sama dag. Mennirnir hugðust einnig brjótast inn í aðra íbúð. Þá gerðust þeir jafnframt sekir um glæfralegan akstur í Mosfellsbæ stuttu áður á stolnum bíl.
Aðspurður um tengsl þarna á milli kvaðst varðstjóri ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu. Vitni að handtöku mannsins á föstudagskvöld lýsa því þannig að hann hafi verið leiddur út í lögreglubíl klæddur í fátt annað en bol og nærbuxur. Þá mun lásaopnari hafa komið á vettvang til þess að opna íbúðina þar sem maðurinn hafði læst sig inni.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum