„En ég er hættur að blogga. Og tjá mig á Facebook. Ég ætla ekki að verða næsta fórnarlamb réttarkerfisins.“ Þetta skrifar Valgarður Guðjónsson bloggari á Eyjunni í nýrri færslu sem hann hefur birt. Segist hann sjá sig knúinn til þess að gera þetta í kjölfar þess að sonur hans sem hafi verið dæmdur til að greiða háar skaðabætur í héraðsdómi fyrir blogg skrif, hafi fengið þau skilaboð að hann fái ekki að áfrýja málinu til Hæstaréttar.
Andrés Helgi Valgarðsson var í fyrra dæmdur til að greiða samtals 950 þúsund krónur vegna skrifa á bloggsíðu sína um Aratúnsmálið svokallaða. Sagðist hann í samtali við DV ætla að áfrýja málinu til Hæstaréttar en nú hefur honum verið synjað um það. „Þetta er svakaleg upphæð og mér finnst það sjokk að héraðsdómur hafi dæmt svona,“ sagði Andrés Helgi í samtali við DV á þeim tíma.
„Nýlega var sonurinn, Andrés Helgi, dæmdur til að greiða háar skaðabætur í héraðsdómi og síðan neitaði Hæstiréttur að taka málið fyrir. Dómurinn var að mínu viti fráleitur og þeir lögfræðingar sem ég hef rætt við eru mér sammála. Dómurinn er í innra ósamræmi, fullyrðir hluti sem ekki hefur verið sýnt fram á og notar nýstárlegar skilgreiningar á þekktum hugtökum. Annar bloggari var sömuleiðis dæmdur nýlega til að greiða háar skaðabætur fyrir ummæli þar sem dómarinn skildi ekki ensku.“
Valgarður segir að á meðan þetta eigi sér stað séu ofbeldismenn að sleppa með væga dóma. „Og það er handahófskennt hverjir fá að áfrýja til Hæstaréttar. Þetta er vont. Þetta er ömurlegt. Og til háborinnar skammar í ríki sem er að myndast við að vera réttarríki.“
Hinsvegar sé verra að öllum virðist vera nákvæmlega sama. „Við höfum óskað eftir stuðningi frá netmiðlum. Þeim kemur þetta ekki við. Við höfum bent fjölmiðlum á þetta. Þeim er nákvæmlega sama – eru of uppteknir við að fjalla um þjóðþrifamál eins og hundaskít í Árborg. Þegar málfrelsi er troðið í svaðið af réttarkerfinu er ekki áhugi. Einhvern veginn hefði ég haldið að vefmiðlar sem treysta á líflegar og opnar umræður myndu taka afdráttarlausa afstöðu. Jafnvel hefði ég fyrirfram haldið að öðrum bloggurum væri ekki bókstaflega skítsama. Röðin kemur nefnilega bráðum að þeim. Veiðileyfið hefur jú verið gefið út.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum