Bílvelta á Snæfellsnesi: Þyrla gæslunnar sótti þrjá slasaða

Allir sem voru í bílnum fluttir á slysadeild Landspítalans

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti þrjá einstaklinga sem slösuðust í bílveltu á Snæfellsnesi í kvöld. Þau voru flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Tvö af þremur sem voru í bílnum köstuðust út úr honum.

Mbl.is greinir frá þessu en í frétt vefsins um máli kemur fram að slysið hafi átt sér stað á Útnesvegi á Snæfellsnesi, nálægt Hellnum. Þeir sem voru í bílnum slösuðust allir en mismikið. Ekki er vitað um orsök slyssins en aðstæður eru sagðar hafa verið góðar.

Í samtali við DV sagði vakthafandi læknir á slysadeild Landspítalans að enginn hinna slösuðu sé í lífshættu en að enn sé verið að meta ástand þeirra, eitthvað væri þó um beinbrot. Allir þrír einstaklingarnir voru með meðvitund þegar þeir komu á spítalann.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.