59 fjölskyldur borguðu meira í skatt en þær þénuðu árið 2010

Fjölskyldurnar áttu samtals 30 milljarða króna

Tekjur 59 fjölskyldna dugðu ekki fyrir sköttum árið 2010 og munaði þar tæplega 400 milljónum króna. Fjölskyldurnar voru með 430 milljónir króna í tekjur en þær greiddu 829 milljónir í skatta. Þetta kemur fram í Tíund, blaði sem gefið er út af Ríkisskattstjóra.

Ljóst er að fjölskyldurnar þurftu að greiða af sparnaði eða selja eignir til að standa straum af skattinum sem lagður er á þær. Auðlegðarskattur sem lagður var á í fyrsta skipti eftir hrun er líklegasta skýringin á því að fólk þurfi að borga meiri skatt en það hefur í árstekjur.

Fjölskyldurnar 59 sem hér um ræðir áttu 30.513 milljónir króna í eignir á móti aðeins 829,4 milljóna króna skuldum. Auðugasta eitt prósent fjölskyldna áttu síðan einar og sér 503.016 milljónir króna, sem var 14,5 prósent af öllum eignum í landinu, saman borið við 14,8 prósent árið 2007.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.