Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti

Hæstiréttur snéri við úrskurði héraðsdóms í sendiráðsmálinu

Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær að embætti sérstaks saksóknara mátti leggja hald á tæplega hundrað milljónir króna af bankareikningi feðganna Karls Steingrímssonar og Arons Karlssonar.

Hæstiréttur felldi þar með úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í síðasta mánuði sem hafði aflétt haldlagningu á 92.150.336 krónum af bankareikningi feðganna hjá MP Banka. Málið á rætur sínar að rekja til rannsóknar á meintum brotum við sölu á hinu margumræddu fasteign við Skúlagötu til kínverska sendiráðsins þar sem grunur leikur á að Aron hafi hlunnfarið lánadrottna um 300 milljónir króna við söluna.

Rannsókn efnahagsbrotadeildar á málinu hófst 15. janúar 2010 og ákvað ríkislögreglustjóri að leggja hald á inneign feðganna í MP banka. Ein af forsendum fyrir úrskurði héraðsdóms í apríl síðastliðnum var að rannsókn málsins hefði dregist svo mjög að ekki væri annað hægt en að aflétta haldlagningunni. Í dómi Hæstaréttar í gær segir hins vegar að rannsókn málsins væri nú lokið með því að Aron var ákærður fyrir sinn þátt í málinu. Ágreiningslaust væri að bankainnstæðan væri til komin vegna þeirra gjörninga sem til rannsóknar voru og ákært hefur verið fyrir og því væri ekki tilefni til að fella haldlagningu fjármunanna úr gildi líkt og héraðsdómur vildi meina. Hæstiréttur tók reyndar undir með héraðsdómi að langt hlé hefði orðið á rannsókn málsins og ekki hefðu komið fram haldbærar skýringar á þeim hléum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.