„Þeir einu sem geta komið [lýðræðinu] til bjargar eru almennir borgarar,“ segir Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi á vefsíðu sinni. Í pistlinum varar hún við lýðskrumi og segir það áhyggjuefni að fólk sjái ekki það lýðskrum og hrun á hefðbundnum samfélagsgildum sem hafi átt sér stað. „Almennir borgar geta líka átt þátt í því að tortíma lýðræðinu með því að kjósa yfir sig öfl sem eru ekki bundin verðleikum heldur hagsmunum.“
Í pistlinum vitnar Herdís til þess að aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins hafi varið við því fyrr í mánuðinum að fjársterkir aðilar hefðu orðið slík ítök í fjölmiðlum að þeir hafi tak á kjörnum stjórnvöldum. „Hann benti á að almenningur er ekki meðvitaður um þessi tengsl fjármála, fjölmiðla og stjórnmála. Það eru fjármálaöflin sem stjórna ferðinni ekki þeir sem almenningur hefur kosið til þess,“ skrifar Herdís sem bendir á að almenningur vantreysti stjórnmálafólki. „Eingöngu með því að rjúfa tengslin á milli hagsmunaðila og kjörinna stjórnvalda getum við byggt upp heilbrigt lýðræði.“
Herdís tilkynnti um framboð sitt til forseta í lok mars. Stuðningur við framboðið mælist um þrjú prósent samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ á fylgi forsetaframbjóðendanna sem gerð var dagana 24.-26. apríl.
„Þeir sem gleyma fortíðinni endurtaka mistökin,“ pistil Herdís Þorgeirsdóttur má lesa í heild á vef hennar herdis.is.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013