Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra verður á Beinni línu á DV.is á morgun klukkan 14.00. Össur mun þar svara spurningum sem brenna á lesendum blaðsins.
Össur hefur um margra ára skeið verið í eldlínunni í stjórnmálum hér á landi en hann hefur setið í ríkisstjórn síðan árið 2007. Össur verður sá tuttugasti og fimmti til að setjast við tölvuna og svara á Beinni línu. Athugið að slóðin á Beinu línuna verður www.dv.is/beinlina.
Bein lína var um árabil þekkt fyrirbæri á vegum DV. Þá gátu lesendur hringt inn og borið spurningu fyrir ráðamenn eða aðra þekkta einstaklinga sem í deiglunni voru hverju sinni. Með Beinni línu á DV.is er markmiðið að færa þá hugmynd til nútímans. DV hvetur lesendur til að sýna kurteisi í orðavali og spyrja hnitmiðaðra spurninga.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013