Stjórnarflokkarnir í Grikklandi máttu þola nær algjört fylgishrun í þingkosningunum þar í landi í gær. Ljóst er að Nýi Lýðræðisflokkurinn og Pasok hafa misst þingmeirihluta sinn á meðan öfgaflokkar á báðum endum hins pólitíska skala virðast blómstra í óvissunni og ólgunni sem ríkir í landinu. Erfið staða er komin upp í Grikklandi eftir kosningarnar.
Nýi Lýðræðisflokkurinn fékk þó mesta fylgi allra flokka eða 18,9 prósent, en fékk 33,5 prósent árið 2009. Hinn stjórnarflokkurinn, Pasok, fékk aðeins 13,2 prósent en fékk 43,9 prósent 2009. Hrunið er algjört. Stjórnarflokkarnir sem samanlagt höfðu 77,4 prósent atkvæða eftir kosningarnar 2009 eru nú aðeins með rúmlega 33 prósent atkvæða.
Vinstri menn næst stærstir
Syriza, bandalag vinstrimanna, fékk 16,7 prósent atkvæða. Stefnumál þeirra var fyrst og fremst að mynda ríkisstjórn vinstrimanna og hafna alfarið samningi Grikklands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Evrópubandalagið um björgunarpakkann sem forðaði þeim frá þjóðargjaldþroti. Syriza-menn eru ósáttir við skilmála samkomulagsins og telja þá gulltryggja glötun þjóðarinnar í framtíðinni. Að auki er Syriza algjörlega á móti harkalegum niðurskurði núverandi ríkisstjórnar.
Nýr flokkur hægrimanna, Sjálfstæðir Grikkir, tryggði sér fjórða sætið í kosningunum með 10 prósent fylgi. Leiðtogi þess flokks hefur útilokað samstarf með núverandi stjórnarflokkum.
Nýnasistar með nítján menn á þing
Það sem mesta athygli hefur þó vakið, að fylgishruni stjórnarflokkanna undanskildu kannski, er að öfgahægriflokkurinn, Chrysi Avgi (eða Gyllt dögun), sem kallaður hefur verið nýnasistaflokkur nýtur mikils fylgis. Flokkurinn fékk um 7 prósent atkvæða sem ætti að duga til að tryggja þeim 19 fulltrúa á gríska þingið, að því er Guardian greinir frá, en 300 sæti eru í boði. Eitt af aðalstefnumálum flokksins voru innflytjendamál.
Leiðtogi Nýja Lýðræðisflokksins hefur nú þrjá daga til að mynda ríkisstjórn. Ef það tekst ekki fær Syriza tækifæri til að mynda stjórn og loks Pasok ef það tekst ekki. Ef ekki tekst að mynda starfhæfan meirihluta þarf að efna til nýrra kosninga. Slík stjórnarkreppa gæti farið illa í alþjóðlega lánadrottna.

Hemmi Gunn fallinn frá