Ekki er rétt sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í samtali við fréttastofu RÚV að loknum miðstjórnarfundi flokksins að ríkisstjórnin hefði skapað þjóðinni meira tjón eftir hrun en það tjón sem skapaðist af hruninu sjálfu. Séu hagtölur og aðrar vísbendingar um stöðu þjóðarbúsins skoðaðar er ekkert sem bendir til þess að aðgerðir ríkisstjórnarinnar, eða aðgerðarleysi hennar, hafi skapað aukið tjón. Hrun bankanna hafði talsverð áhrif sem þó sér fyrir endann á.
Mikill efnahagsbati hefur orðið hér á landi frá því haustið 2008 og eru tölur sem sýna fram á annað vandfundnar. Margt hefur þó verið gagnrýnt fyrir að hafa ekki verið gert, eins og almenn skuldaafskrift sem Sigmundur Davíð hefur sjálfur talað ötullega fyrir. Þessi ummæli eru þau ekki þau fyrstu sem Sigmundur lætur falla án þess að innistæða sé fyrir.
Það sem er sérstaklega athyglisvert þegar mörg ummæli og fullyrðingar Sigmundar eru sannprófuð er að yfirleitt eru þau ummæli sem orka tvímælis með þeim hætti að erfitt er að benda á hreinar lygar þó ummælin séu villandi. Sum ummælanna eru þó þannig að um hrein og klár ósannindi er að ræða.
DV hefur tekið saman lista yfir nokkur ummæli hans og flokkað þau niður í þrjá mismunandi flokka: Villandi ummæli, hrein og klár lygi og haugalygi.

Hemmi Gunn fallinn frá