„Værum ekki að tala saman í dag hefði ég ekki verið með hjálm“

Kjartan varð fyrir vélhjóli í gær - Hjálmurinn bjargaði lífi hans

„Ég flýg af hjólinu, enda á höfðinu og öxlinni og hjálmurinn endar í þessum molum. Eini skaðinn sem varð á höfðinu eftir að hafa lent á því eru tólf spor sem sauma þurfti,“ segir Kjartan Sverrisson sem varð fyrir vélhjóli við Víkurvegsbrú á Vesturlandsvegi á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Kjartan var á reiðhjóli og var höggið töluvert. Hann var hins vegar með hjálm sem hann segir að hafi bjargað honum.

„Ég er lemstraður, marinn, blár og hruflaður út um allan líkama en við værum ekki að tala saman í dag hefði ég ekki verið með hjálm,“ segir Kjartan þegar blaðamaður DV hafði samband við hann í dag. Kjartan birti í dag mynd af blóðugum tætlum reiðhjólahjálmsins á Facebook-síðu sinni og hefur sú óhugnanlega mynd farið víða í netheimum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notar hana meira að segja í forvarnartilgangi og hvetur alla til að nota hjálma.

Og Kjartan tekur svo sannarlega undir þau varnaðarorð.

„Ég er þakklátur fyrir að ganga svona þokkalega heill til skógar. Ég hvet eindregið til þess að fólk noti hjálma þegar það er að hjóla.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.