„Þessi dómur Hæstaréttar er auðvitað mikil vonbrigði og vekur furðu. Hann segir beinlínis að menn hafi ekki rétt á því að leita réttar síns fyrir dómstólum á meðan stjórnvald hefur mál til rannsóknar. Þetta er niðurstaðan, þrátt fyrir að Samherji hafi hrakið málatilbúnað Seðlabanka með afar sterkum rökum. Samherji hefur sýnt fram á að útreikningar Seðlabankans sem aðgerðir hans gegn félaginu byggja á, eru beinlínis rangir. Hæstiréttur segir fullum fetum að brotið hafi verið á rétti Samherja við málsmeðferðina en engu að síður er málinu vísað frá dómi,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri útgerðafélagsins Samherja, um ákvörðun Hæstaréttar að vísa kröfu fyrirtækisins frá.
Krafðist Samherji að rannsókn gjaldeyriseftirlits Samherja á meintum brotum fyrirtækisins og tengdra félaga á lögum um gjaldeyrismál verði dæmd ólögmæt og stöðvuð. Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms í málinu,

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum