Átján ára piltur, sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi eftir að hafa orðið Eyþóri Darra Róbertssyni að bana við ofsaakstur á gatnamótum Geirsgötu og Tryggvagötu í Reykjavík ágúst í fyrra, mótmælti ákærunni fyrir dómi í morgun. Frá málinu var greint í kvöldfréttum Stöðvar 2 en kom fram að í ákærunni gegn piltinum segir að hann hafi einnig stofnað vegfarendum í hættu á ófyrirleitinn hátt.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kom fram að móðir Eyþórs Darra, bróðir hans og amma hefðu verið viðstödd þingfestingu málsins í héraðsdómi í morgun. Er sá ákærði sagður hafa verið góður vinur Eyþórs Darra en hann er sakaður um að hafa ekið bifreið langt yfir hámarkshraða auk þess að vera ákærður fyrir að aka bílnum án tilskilinna ökuréttinda.
Í ákærunni kemur fram að ætlaður hraði bílsins hafi verið 119 kílómetrar á klukkustund en mögulegur lágmarkshraði sé 102 kílómetrar á klukkustund en mögulegur hámarkshraði 136 kílómetrar á klukkustund þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukkustund. Pilturinn mómælti því að hafa verið á þessum hraða og verður skiluð greinagerð með skýringum þegar aðalmeðferð hefst.
Báðir foreldrar Eyþórs Darra fara fram á þrjár milljónir króna í skaðabætur, að því er fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013