Kærasta mannsins, sem var skotinn til bana eftir að hafa rifið í sig andlit heimilislauss manns, telur að manninum hafi annað hvort verið byrlað lyfjum eða að hann hafi verið fórnarlamb vúdú-bölvunar.
Maðurinn, sem var 31 ára og hét Rudy Eugene, var kominn af innflytjendum frá Haití en kærasta hans, sem er ekki af haitískum uppruna, segist ekki hafa trúað á vúdú-galdra fram til þessa. „Ég veit ekki hvernig er annars hægt að útskýra þetta,“ segir konan en í viðtali við Miami Herald segir hún að Eugene hafi verið gæflyndur og heittrúaður maður, sem reykti oft kannabis en þverneitaði að taka sterkari efni.
Samkvæmt lögreglu var Eugene handtekinn árið 2004 fyrir að hafa hótað móður sinni lífláti. Móðir hans telur einnig að honum hafi verið byrlað lyfjum áður en árásin átti sér stað. „Allir segja að hann hafi verið afturganga, en ég veit að það var hann ekki; hann er sonur minn,“ segir hún. „Ég veit ekki hverju var sprautað í hann til að breyta honum í þann mann, sem gerði það sem hann gerði.“
Kærastan hans segir í viðtalinu að maðurinn hafi vakið hana að morgni dagsins sem atvikið átti sér stað og sagt að hann ætlaði að hitta vin sinn. Henni fannst undarlegt að hann væri að gramsa í skápnum svo snemma morguns og að hann færi svo snemma út úr húsi.
Klukkutíma eftir að Eugene fór út úr húsi hringdi hann í farsíma kærustu sinnar og sagði að bíllinn sinn hefði bilað. Hann sagði að hann kæmi seint heim og að hann hygðist hringja í hana aftur. Það var í seinasta skiptið sem þau töluðust saman.
Hún segir að það hafi komið henni á óvart að frétta það að Eugene hafi verið í suðurhluta Miami áður en árásin átti sér stað, þar sem hann hafi sagt að hann vildi ekki vera í þeim hluta bæjar af ótta við að vera handtekinn en þar var aukinn viðbúnaður lögreglu vegna Urban Beach Week hátíðarinnar og Eugene hafði áður verið handtekinn fyrir vörslu kannabisefna.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013