Jónína og Gunnar hætt í Krossinum

„ Gunnar minn hefur endanlega verið sigraður í þeirri kirkju sem hann byggði upp“

„Ég hef sagt mig úr Krossinum en óska því fólki sem valið hefur að iðka trú sína, í því andrúm sem þar er í boði, góðs gengis,“ skrifar athafnakonan Jónína Benediktsdóttir í yfirlýsingu á Facebook-síðu sína í dag. Af henni verður ekki betur séð en að Gunnar Þorsteinsson, eiginmaður Jónínu og stofnandi Krossins, sé einnig hættur.

„Gunnar minn hefur endanlega verið sigraður í þeirri kirkju sem hann byggði upp og það af sömu öflum og reyndu að knésetja hann þegar við giftum okkur. Ég varð fyrir þvílíkri persónulegri árás inn í hjarta mitt af fyrrum konu Gunnars og hann líka fyrir framan söfnuðinn að við erum sem lömuð. Mest af sorg því við lögðum mikið á okkur til þess að elska fólkið sem þar sóttu samkomur,“ skrifar Jónína og vísar þar væntanlega til ásakana á hendur Gunnari um að hann hafi brotið gegn konum kynferðislega á árum áður, þegar þær voru ungar stúlkur. Það mál komst í hámæli undir lok árs 2010 og steig Gunnar til hliðar sem forstöðumaður Krossins í kjölfarið.

„...þetta er staðreynd málsins og ég vil bara að þið heyrið þetta frá mér [...]. Já ég hef sagt mig úr Krossinum og tek ekki á mig syndir hvað þá sjúkdóma annarra í meðvirkni þeirri sem þar nú ríkir gagnvart fársjúku fólki,“ segir Jónína enn fremur segir að Gunnar sé „brotinn vegna þeirra árása sem á hann eru lagðar endalaust.“

„En hann er fastur í trúnni og neitar að gefast upp. Guð launi ykkur. Ég hef sannfærst um að lítið er sameiginlegt með trú og kirkjum í dag. Valdabröltið og illmælgi ráða þar ríkjum, í Krossinum sem og annars staðar. Kirkja á að vera opin öllu fólki en ofstæki ræður nú ríkjum í Krossinum, eina ferðina enn. Það er stór hættulegt veikum sálum. Leitt að þurfa að skrifa þetta hér en fjölmiðillinn minn er Facebook.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.