Mikil og megn óánægja hefur ríkt á Eskifirði og Fáskrúðsfirði, vegna ákvörðunar stjórnar Landsbanka Íslands um að loka útibúunum á þessum stöðum.
Um 150 manns komu saman fyrir utan útibúið á Fáskrúðsfirði til að mótmæla lokuninni. Samkvæmt heimildum DV voru öryggisverðir í útibúinu sem meinuðu myndatökur.
Þeir sem vildu taka út sinn pening var sagt að þeir gætu ekki fengið þetta í peningaseðlum, heldur ávísun, en viðskiptavinirnir þáðu það ekki.
Þá greindi fréttastofa Ríkisútvarpsins frá því að roskinn maður hefði neitað að yfirgefa útibú Landsbankans á Króksfjarðarnesi þrátt fyrir að komið hefði verið fram yfir lokunartíma. Gat hann ekki tekið út peninga sökum þess að peningarnir í útibúinu voru á þrotum. Greindi RÚV frá því að leyst hefði verið úr máli mannsins og hann yfirgaf loks bankann, en ekki kom fram hvort hann hefði fengið peninga frá bankanum.
Íbúar á Fáskrúðsfirði hafa sent út tilkynningu þar sem þeir lýsa furðu sinni á því að stjórnvöld loki útibúi Landsbankans á staðnum. Nýta þeir tækifærði og bjóða öðrum bankastofnunum í byggðarlagið og þeir muni taka fagnandi á móti þeim.
Yfirlýsingin frá íbúum á Fáskrúðsfirði:
Íbúar Fáskrúðsfjarðar lýsa furðu sinni á því að stjórnvöld með 1. Þingmann kjördæmisins í fararbroddi sem eigandi og stjórn Landsbankans með okkar fyrrverandi bæjarstýru innanborðs skulu hafa ákveðið að leggja niður Landsbankann á staðnum. Ákvörðunin segir allt um hugsunargang þessa fólks og hugarþel gagnvart okkur íbúum Fáskrúðsfjarðar þannig að það er engu við það að bæta og hafi þau ætíð skömm af þessu.
Við íbúar Fáskrúðsfjarðar viljum nota tækifærið og bjóða aðra bankastofnun auðfúsagest í okkar fallega fjörð og ef einhver vill kom munum við taka fagnandi á móti henni.
Skýringar:
Landsbanki Íslands kom hingað á Fáskrúðsfjörð 1974 og færðu bæjarbúar honum öll viðskipti Sparisjóðs Fáskrúðsfjarðar á silfurbakka og þetta eru þakkirnar sem við fáum, puttann upp í loftið og bankastofnuninni rænt frá okkar. Þetta er eitt af mörgum skrefum sem stjórnvöld hafa stigið undanfarinn ár til að grafa undan byggð hér og annars staðar út á landi og við spyrjum eins og Kristinn Jóhannsson í Neskaupstað “ Hvað höfum við gert ykkur?”

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum