„Ég er ekki viss hvort ég ætlaði að drepa einhvern, ég bara veit það ekki. Ég hef mikið verið að spyrja mig hvað ég ætlaði að gera,“ sagði Guðgeir Guðmundsson í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þar sem mál á hendur honum fyrir manndrápstilraun, og sérlega hættulega líkamsárás á lögmannsstofunni Lagastoðir í mars, var tekið fyrir. Guðgeir tók fyrir dómi í morgun afstöðu til ákæruliðanna. Hann tjáði sig á hægan og yfirvegaðan máta og bætti við.
„En ég er skaðvaldurinn í þessu máli. Ég er ekki viss hvort ég hafi ætlað að drepa einhvern eða ekki,“ sagði hann um ákæruliðinn er snýr að hrottafenginni árás hans á Skúla Eggert Sigurz, framkvæmdastjóra Lagastoðar, sem engu mátti muna að kostaði Skúla lífið.
Guðgeir er einnig ákærður fyrir sérlega hættulega líkamsárás á Guðna Bergsson, sem kom Skúla til bjargar á skrifstofu Lagastoðar. Um þann ákærulið sagði Guðgeir:
„Ég man ekkert eftir því. Þetta gæti hafa gerst. Ég bara veit það ekki.“
Af svörum hans að dæma þá virðist hann ekki þræta fyrir það sem hann er ákærður fyrir þó hann hafi kannski ekki tekið skýra afstöðu til ákæruliðanna sem slíkra.
Spurður út í bótakröfuna sem gerð er á hann í málinu sagði Guðgeir: „Ég myndi vilja hafna henni.“
Líkt og DV greindi frá í gær er Guðgeir sakhæfur í málinu.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi