„Allur Evrovision-afslátturinn sem veittur var síðastliðinn sunnudag ætti að skila sér til landsmanna á hverjum einasta degi,“ sagði þingmaður Samfylkingarinnar Skúli Helgason á Alþingi á fimmtudag. Þar ræddi hann hvernig verðlækkun á heimsmarkaði á olíu skilaði sér ekki til neytenda. Sagði hann að á síðustu fjórum vikum hefði heimsmarkaðsverðið lækkað um 16 prósent en einungis um 4,4 prósent hér á landi.
„Síðan hefur gengi dollarans hækkað um ríflega 3% til viðbótar þannig að ríflega helmingur af lækkun olíunnar á heimsmarkaði situr eftir hjá olíufélögunum, það skilar sér ekki til almennings í landinu,“ sagði Skúli og benti á að um væri að ræða engar smá tölur.
„Ef öll lækkunin hefði skilað sér í vasa almennings ætti bensínlítrinn núna að vera í kringum 20 kr. lægri en hann er,“ sagði Skúli sem skorar á olíufélögin að láta þessa lækkun skila sér til neytenda.
„Þetta hefur áhrif á öll húsnæðislán í landinu sem tekin eru með blessaðri verðtryggingunni eins og við þekkjum og þetta er eitt mikilvægasta verkefni okkar í efnahagsmálum þessi missirin að reyna að halda verðbólgunni niðri. Þar er reyndar þörf á því að mínu mati að stjórnvöld setjist niður með aðilum vinnumarkaðarins og fari með formlegum hætti í skipulagðar aðgerðir til að halda verðbólgunni í skefjum. Það eru reyndar tímabundin jákvæð teikn á lofti. Verðbólgan hækkaði mun minna í síðasta mánuði en mánuðina þar á undan en þarna þurfum við sannarlega að halda vöku okkar.“

Hemmi Gunn fallinn frá