Banaslys á Ólafsfjarðarvegi

Lenti út af veginum

Banaslys varð á Ólafsfjarðarvegi á milli Hringvegar og Hörgárbrúar um miðnætti í gærkvöldi, þegar bíll, sem karlmaður á þrítugsaldri ók, lenti út af veginum og fór nokkrar veltur. Ökumaðurinn var einn á ferð en hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Samkvæmt frétt Vísis eru tildrög slyssins ókunn en lögreglan á Akureyri og Rannsóknarnefnd umferðaslysa rannsaka málið.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.