Óhætt er að segja að rekstur og eignarhald á Hörpu sé flókið en tónlistar- og ráðstefnuhúsið, sem og reiturinn við hlið hússins, er í umsjón eða rekstri átta mismunandi félaga. Félagið sem trónir á toppi pýramídans er Austurhöfn TR, sem er í eigu íslenska ríkisins og Reykjavíkurborgar, en undir því eru hin ýmsu félög sem keypt voru í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008 til að hægt væri að halda uppbyggingu og rekstri hússins áfram, en það var áður í höndum einkaaðila.
Í félögunum átta situr samtals sautján mismunandi stjórnarmenn. Þeir sitja flestir í fleiri en einu félagi og eru þeir Pétur J. Eiríksson, Björn L. Bergsson og Haraldur Flosi Tryggvason áberandi þegar litið er yfir stjórnarmenn í félögunum. Hver um sig situr í stjórnum minnst fjögurra félaga en Pétur situr í stjórnum flestra félaganna, eða samtals sex af átta. Enginn af þeim sem sitja í stjórnum Austurhafnar TR situr hinsvegar í stjórnum dótturfélaganna.
Ítarlega umfjöllun um stjórnkerfi Hörpunnar og annarra eigna á Austurhöfninni í Reykjavík er að finna í heild sinni í DV í dag. Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild sinni með því að ýta á meira.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013