Andstöðumenn gegn ESB-aðild selja límmiða á heyrúllur

„Hugað að því að auglýsingarnar séu frumlegar en kostnaðarlitlar“

Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, býður nú upp á límmiða á heyrúllur.

Þannig geta bændur og landeigendur merkt rúllurnar og sett þær við vegi eða aðra áberandi staði til þess að vekja athygli á málstaðnum.

Ásmundur Einar Daðason, formaður Heimssýnar, segir að þetta sé fyrsta skrefið í að láta bera á þessum málstað og að fleiri slíkar auglýsingar muni koma á næstunni. „Við erum að reyna að vekja athygli á þeirri þéttu andstöðu sem er gegn Evrópusambandinu meðal Íslendinga, án þess að eyða miklum fjármunum. Við höfum ekki sömu fjármuni úr að spila eins og til að mynda ESB sem er að eyða hér hundruðum milljóna og milljörðum í áróðursstarfsemi með dýrum auglýsingum.“

Ásmundur segir að reynt sé að huga að því að hafa auglýsingarnar frumlegar en um leið kostnaðarlitlar. „Þetta er búið að fá gríðarlega góðar undirtektir, þetta var sett af stað strax í morgun og við erum þegar farnir að fá pantanir alls staðar af landinu. Við náttúrulega fögnum því enda hefur andstaða við ESB sjaldan verið jafn mikil meðal þjóðarinnar og nú.“

Þvermál límmiðanna er 120cm og eru þeir seldir 5.000 krónur. Límmiðunum verður komið á svæði þess sem pantar, honum að kostnaðarlausu ef pantað er fyrir 15. júní.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.