Hús Kára Stefánssonar, stjórnanda og stofnanda Íslenskrar erfðagreiningar, í Kópavogi er eitt af íburðarmestu húsum landsins. Samkvæmt fasteignaskrá er húsið 629 fermetrar að stærð og er það á eftirsóttum stað í bænum, með útsýni yfir allt Elliðavatn. Enn er ekki ljóst hvenær Kára gefst færi á að flytja inn í húsið en það styttist þó óðum í það, sé mið tekið af gangi framkvæmda.
Hjónaherbergið er talsvert stærra en bíósalurinn sem gert er ráð fyrir í teikningunum á neðri hæð hússins, sem Hlédís Sveinsdóttir arkitekt teiknaði. Salurinn er skráður rúmir 38 fermetrar en hann er á sömu hæð og bókasafnið. Bókasafnið er hins vegar umtalsvert stærra, eða rúmir 62 fermetrar.
Nánar er fjallað um húsið í DV í dag en þar má sjá teikningar af báðum hæðum.


Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi