Árásir Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar á sjö manns voru þaulskipulagðar og sérstaklega ófyrirleitnar. Þeir eru ákærðir ásamt átta öðrum einstaklingum, þeir yngstu sem eru ákærðir eru fæddir árið 1993. DV hefur ákæruna undir höndum, en hún er í mörgum liðum en meðal þess sem kemur fram í henni er að í einni árásinni fóru þeir Annþór og Börkur vopnum búnir á heimili manns á höfuðborgarsvæðinu. Húsráðandi opnaði fyrir þeim en þrír til viðbótar voru á heimilinu.
Þegar inn var komið sendi Annþór, samkvæmt ákærunni, skilaboð til sjö manna, sem biðu fyrir utan um að þeir ættu að koma inn í íbúðina og hleypti hann þeim inn. Sameiginlega réðist hópurinn á fólkið með bareflum; golfkylfum, handlóðum, prikum og fleiru. Einn af þeim sem varð fyrir árásinni hlaut margvíslega áverka, þar á meðal opið beinbrot. Þá var annar handleggsbrotinn eftir árásinna og hinir tveir urðu fyrir höfuðáverkum.
Þá eru þeir Annþór og Börkur sakaðir um að hafa skipulagt aðra árás á þrjá aðila. Sú árás átti sér stað í heimahúsi, en þangað komu þeir Annþór og Börkur vopnum búnir með félaga sína í slagtogi. Þeir réðust á mennina, börðu þá í hnakka og líkama og kröfðust þess að þeir greiddu sér hálfa milljón króna. Þá hélt Annþór einum af mönnunum niðri á meðan að hinir neyddu eitt fórnarlambið til að kasta af sér þvagi á annað fórnarlambið. Því eru þeir Annþór og Börkur ákærðir fyrir árásina, auk þess eru þeir ákærðir fyrir tilraun til fjárkúgunar og frelsissviptingu. Tveir aðilar eru ákærðir auk þeirra Annþórs og Barkar, en talið er að fleiri hafi verið að verki. Ekki er þó vitað hverjir þeir voru.
Í ákærunni kemur einnig fram að tveir aðrir menn eru ákærðir fyrir að hafa flutt tvo einstaklinga til Annþórs. Mennirnir töldu sig eiga sitthvað sökótt við fórnarlömbin, en þegar þeir komu til Annþórs mun hann hafa veist að þeim með bæði höggum og spörkum víðsvegar um líkama og andlit. Hann er einnig talinn hafa tekið annan manninn kverkataki svo að hann missti meðvitund og déll í gólfið. Annþór krafðist þess að mennirnir tveir [fórnarlömbin] létu hann fá peninga. Annþór hótaði mönnum því einnig að ef þeir segðu frá árásinni færu þeir í áskrift hjá honum– sem væri ævilöng skuld við hann.
Eins og áður hefur komið fram eru þeir Annþór og Börkur báðir í einangrun á Litla Hrauni um þessar mundir, en þeir eru grunaðir um að hafa veitt samfanga sínum lífshættulega áverka sem leiddu til dauða hans. Ekki hefur verið gefin út ákæra í því máli, en lögreglan á Selfossi fer með rannsókn málsins.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum