Fólk sem missti heimili sín eða var gert að yfirgefa þau eftir öflugan jarðskjálfta í norðaverðri Ítalíu á dögunum ætlaði vart að trúa því þegar það kíkti út úr neyðarskýlum sínum þegar jörðin tók að skjálfa á ný í í morgun.
Skjálftinn sem varð um klukkan sjö og mældist 5,8 á stærð mun hafa kostað minnst átta manns lífið. Skjálftinn átti upptök sín um 40 kílómetra norðvestur af Bologna og fannst rækilega þar sem og í Mílanó. Sjö manns létu lífið í skjálftanum sem varð fyrir 10 dögum síðan en sá mældist 6 á stærð.
Sjá má þegar fólkið í neyðarskýlunum upplifir skjálftann í morgun á myndbandinu hér fyrir ofan. Fjölmargar erlendar fréttastofur greina frá því að fjölmargir íbúar hafi hlaupið út á götu við jarðskjálftann í morgun, bersýnilega afar óttaslegið enda aldrei skemmtileg lífsreynsla að upplifa stóra skjálfta.
Uppfært: 10:00 Tala látinna var nú fyrir stundu hækkuð úr þremur í átta.

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi