Lögmaður Guðgeirs Guðmundssonar óskaði eftir fresti fram á fimmtudag til að fara yfir ákæruna og afstöðu til hennar þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Guðgeir er ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að hafa veist að Skúla Eggerts Sigurz, framkvæmdastjóra lögmannsstofunnar Lagastoðar, með hnífi í byrjun mars síðastliðinn. Þá er hann einnig ákærður fyrir hættulega líkamsárás með því að hafa veist að Guðna Bergssyni, lögmanni og fyrrverandi knattspyrnukappa, sem kom Skúla til bjargar. Guðgeir stakk Guðna tvisvar í vinstra lærið.
Í ákæru málsins sem gerð var opinber í kjölfar þingfestingarinnar gefur að líta hversu alvarleg árásin á Skúla var og hversu ótrúlegt það sé að hann hafi hreinlega lifað hana af.
Í ákærunni segir að Skúli hafi hlotið 5 stungusár í árásinni. Á hægri öxl, hægra og vinstra megin á brjóstkassa, aftarlega á hægri síðu og ofan við vinstri mjaðmarspaða auk minni skurða á höndum og andliti.
Gekk hnífurinn gegnum þindina og í lungu bæði hægra og vinstra megin, gegnum hægra nýra, í lifur og í gallblöðru, með þeim afleiðingum að Skúli missti 50 lítra af blóði, samkvæmt ákærunni, í framhaldi af árásinni og meðan gert var að sárum hans.
Þá kemur þar fram að fjarlægja hafi þurft hægra nýrað og gallblöðru Skúla auk þess sem bæði lungu hans sködduðust, tvö göt hafi komið á þind hans auk áverka á lifur.
Segir að fjögur hinna fimm stungusára hafi verið lífshættuleg ein og sér, þó aðrir áverkar hefðu ekki komið til.
Skúli gerir kröfu um 3 milljónir króna í miskabætur fyrir árásina og Guðni rúmlega milljón.
Guðgeir var mættur í dómsal í dag en var handjárnaður í fylgd tveggja varða. Hann var fölur með alskegg og virkaði rólegur í dómsal.

Hemmi Gunn fallinn frá