Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
10:28 › 29. maí 2012
Borgarbókasafn efnir til vikulegra kynningarfunda um forsetaembættið og frambjóðendur til embættisins. Fundirnir verða á miðvikudögum kl. 17.15-18.15 í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Á morgun, miðvikudaginn 30. maí frá kl. 17.15 til 18.15 munu frambjóðendurnir Ari Trausti Guðmundsson, Hannes Bjarnason og Þóra Arnórsdóttir kynna sig og áherslur sínar. Fundirnir eru ætlaðir almenningi og öllum opnir.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi