Smugan greinir frá því í dag að grunur sé um að milljónum króna hafi verið skotið undan skatti í starfsemi Jens Kjartanssonar lýtalæknis, en eins og áður hefur komið fram hefur skattrannsóknarstjóri haft skattamál hans til rannsóknar síðan í janúar og er rannsóknin langt kominn. Á Smugunni er greint frá því að hver aðgerð mun kosta í kringum hálfa milljón króna og því gæti velta vegna svona aðgerða því numið um 200 milljónum króna.
Líkt og DV hefur greint frá, samkvæmt heimildum, leikur grunur á að einhverjar konur hafi greitt Jens Kjartanssyni lýtalækni undir borðið fyrir silíkonaðgerðir, jafnvel án þess að gera sér grein fyrir því. Jens sjálfur hefur þó neitað því. Vegna orðrómsins og frétta af máli hans hafði velferðarráðuneytið sent fjármálaráðuneytinu erindi til að meta hvort málið verði rannsakað.
Samkvæmt heimildum DV virðist þó sem pottur sé víðar brotinn í starfsemi lækna á einkastofum. DV ræddi við konu sem fór í silíkonbrjóstaaðgerð í byrjun árs 2009 og telur hún sig hafa greitt hluta af aðgerðinni undir borðið. Konan, sem ekki vill koma fram undir nafni, setti aðgerðina á raðgreiðslur á kreditkorti sínu en var þó sérstaklega beðin um að skilja eftir 50 þúsund krónur í reiðufé í umslagi á læknastofunni, fyrir svæfingalækninn. Þótti henni það strax mjög einkennilegt en gerði þó ekki veður út af því.
Snúið á tryggingarnar?
Konan segir lýtalækninn hafa tekið það fram fyrir aðgerðina að ef hún yrði ekki ánægð með útkomuna gæti hún farið í aðra aðgerð þar sem fita væri færð af lærunum í brjóstin til að fylla betur upp í. Seinni aðgerðin yrði henni þó að kostnaðarlausu. Læknirinn sagði að hann myndi skrá þá aðgerð sem lagfæringu á öri og rukka Tryggingastofnun um kostnaðinn. Þannig gæti hún boðið henni endurkomuna án aukakostnaðar. Konan var vissulega sátt við þann ráðahag að þurfa ekki að greiða fyrir lagfæringu ef til þessi kæmi og samþykkti skilmálana.
Það fór svo að hún var ekki ánægð með útkomuna og kvartaði við lækninn um mitt ár 2009. „Þegar ég kom til hennar í júní og kvartaði sagðist hún tilbúin að gera aðra aðgerð en hún væri ekki viss um að svæfingalæknirinn væri tilbúinn að vinna á taxta Tryggingastofnunar,“ segir konan sem hefur því enn ekki lagt í aðra aðgerð og setur stórt spurningamerki við þessi vinnubrögð læknanna.
Skattrannsóknarstjóri hefur stefnt lögmanni yfir 100 kvenna sem fengu PIP sílikonbrjóstaígræðslur hjá Jens og hefur Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðað að lögmanninum væri skylt að veita embættinu bæði nöfn og kennitölur skjólstæðinga sinna. Málið hefur verið kært til Hæstaréttar sem úrskurðar væntanlega í málinu á næstu dögum.

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013