Engar upplýsingar fást um mál Egils Einarssonar og unnustu hans hjá Ríkissaksóknara, en eins og kunnugt er hafa þau Egill og unnusta hans verið kærð fyrir nauðgun.
Lögreglurannsókn er lokið og málið er að því er DV kemst næst enn óafgreitt frá ríkissaksóknara. Þegar DV leitaði eftir upplýsingum þar í morgun var hvorki hægt að fá það upplýst hvort málið hefði verið fellt niður eða ákæra gefin út og sagði Hulda Elsa Björgvinsdóttir, saksóknarinn sem fer með málið að hún ætlaði ekki að tjá sig um málið í fjölmiðlum.
Egill og kærasta hans voru kærð af átján ára gamalli stúlku í nóvember síðastliðnum fyrir nauðgun en stúlkan var gestkomandi á heimili þeirra eftir gleðskap í miðbæ Reykjavíkur. Ákvörðun um ákæru átti að liggja fyrir í febrúar, en þá var málinu vísað aftur til lögreglunnar sem lauk rannsókn sinni stuttu síðar og hefur málið beðið endanlegrar afgreiðslu síðan.
Þá liggur fyrir önnur kæra á hendur Agli vegna nauðgunar, en ekki fæst heldur uppgefið hvort gefin hefur verið út ákæra vegna þeirrar kæru.
Stúlkan sakar hann um að hafa brotið gegn sér kynferðislega þegar hún var aðeins fimmtán ára gömul, samkvæmt heimildum DV. Þá var Egill á þrítugsaldri.
Egill hefur ítrekað haldið fram sakleysi sínu opinberlega og lýsti því meðal annars yfir í yfirlýsingu til fjölmiðla eftir að málið kom upp að hann hefði í hyggju að leita réttar síns vegna rangra sakargifta.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum