Lögreglan í Bosníu segist hafa bjargað nítján ára gamalli þýskri stúlku sem var haldið nauðugri í átta ár. Var hún neydd til að borða svínafóður og til að draga fangara sína á hestvagni.
Milenko og Slavojka Marinkovic voru handtekin í þorpinu Karavlasi eftir að nágranni þeirra gerði lögreglu viðvart um að þau hefðu níðst á óþekktri stúlku í mörg ár.
Greint er frá þessu atviki á Huffington Post en þar haft eftir talsmanni lögreglunnar, Admir Arnautovic, að stúlkan hefði þurft að þola pyntingar og lifa við ómannúðlegar aðstæður.
„Þau læstu hana inni og neituðu henni um samskipti við annað fólk,“ sagði Admir.
Lögreglan er frekar þögul um handtöku mannanna sem átti sér stað fyrir ellefu dögum. AFP-fréttastofan ræddi við nágrannan sem gerði lögreglu viðvart. Hann sagðist hafa séð stúlkuna borða grasker og korn, það sama og svínin átu.
Nágranninn sagðist hafa séð hvernig parið neyddi hana til að draga sig á hestvagni.
„Þau notuðu hana sem hross og hlógu,“ sagði nágranninn við AFP sem hafði áður reynt að gera lögreglu viðvart en sagði parið hafa náð að fela stúlkuna fyrir yfirvöldum.
Stúlkan var illa á sig komin þegar lögreglan fann hana, bæði líkamlega og andlega. Er talið að hún hafi verið kynferðislega misnotuð.
Móðir stúlkunnar er sögð hafa flutt hana frá Þýskalandi til þess að giftast Milenko Marinkovic. Er talið að hjónabandið hafi verið sviðsett til að tryggja Marinkovic dvalarleyfi í Þýskalandi. Móðir stúlkunnar er sögð hafa verið í þorpinu þegar parið var handtekið.
Ekki er vitað hvort hún verður ákærð vegna málsins.
Í samtali við AFP neitar móðirin, sem hefur flakkað á milli Karavlasi og Þýskalands í nokkur ár, hafa gerst sek um ólöglegt athæfi: „Þetta eru lygar. Við búum öll hér. Þetta er uppspuni.“

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi