Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
11:05 › 28. maí 2012
Loksins eitthvað hefðbundið og þægilegt. Síðan heyrðirðu þau syngja. Sennilega var ætlunin að syngja í takti en í raunveruleikanum hljómaði þetta eins og þau væri að syngja sitt hvort lagið og hrein tilviljun væri að textinn var sá sami.
Hann er ómyrkur í máli, blaðamaðurinn Michael Deacon hjá The Telegraph í Bretlandi, um framlag Íslands í Eurovision keppninni á laugardaginn var. Þar endaði Ísland, þvert á vonir og margar spár, í nítjánda sætinu af 26 þjóðum.
Gagnrýnin nær reyndar yfir velflest lög keppninnar og ekki síst til breska keppandans, Engilbert Humperdinck, en hans framlag þótti ekki merkilegra en svo að lagið endaði í næstneðsta sætinu með heil 12 stig eða 360 stigum á eftir sigurlagi keppninnar.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum