Misskilningur með Kaupþingsmenn

Dvöldu ekki á heimili Robert Tchenguiz

Sú saga að æðstu yfirmenn Kaupþings banka hafi í aðdraganda bankahrunsins dvalið að staðaldri á heimili Robert Tchenguiz, fjárfestis í bankanum og stórs lántakenda, er byggð á misskilningi.

DV greindi frá því í síðustu viku að einn lögmanna bresku efnahagsbrotadeildarinnar, James Eadie, hafi látið að því liggja fyrir dómi vegna rannsóknar þeirrar deildar á meintum brotum bresku Thenguiz bræðranna að háttsettir yfirmenn Kaupþings hafi rétt fyrir hrun bankans bókstaflega dvalist inni á heimili Robert Tchenguiz.

Í ljós hefur komið að það var ekki raunin. Hefur Eadie þessi sagt þá túlkun byggða á misskilningi að því er fram kemur á bloggvef Sigrúnar Davíðsdóttur, fréttamanns RÚV, sem fylgst hefur með framvindu mála í Bretlandi síðustu árin. Það sem Eadie átti raunverulega við var að yfirmenn Kaupþings hefðu dvalið löngum stundum í grennd við heimili Tchenguiz í Mayfair hverfi í London.

Robert Tchenguiz var bæði hluthafi í Kaupþingi og stór lántakandi fyrir hrunið.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.