Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
19:36 › 28. maí 2012
Ligita Solomenceva fannst í dag látin á stað sem er um þrjá kílómetra frá sumarbústað í Meðalfellssveit. Solomenceva, sem er frá Lettlandi, dvaldi í bústaðnum um miðjan maímánuð, að sögn lögreglunari á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er grunur um að andlát konunnar hafi borið að með saknæmum hætti en ekki hefur verið upplýst um dánarorsök.
Solomonceva kom hingað til lands þann 13. maí en það var vinur hennar frá Lettlandi sem lét lögreglu vita að ekki næðist til hennar.
Um hundrað björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni við Meðalfellsvatn í dag en lögregla hafði upplýsingur sem bentu til þess að hún hefði notað farsíma sinn á svæðinu. Lögreglan rannsakar málið.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013