Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
17:30 › 28. maí 2012
Klukkan tuttugu mínútur í tvö í dag lenti ökumaður bifreiðar í vanda þegar hann hugðist færa bíl sinn til í stæði. Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að bensíngjöfin virðist hafa fests niðri með þeim afleiðingum að bíllinn reykspólaði stjórnlaust af stað og endaði í trjágróðri í nærliggjandi beði. Færa þurfti bifreiðina af gróðrinum með kranabifreið.
Þá var einnig tilkynnt um ofsaakstur fólksbíls á Vesturlandsvegi við Höfðabakka. Rakst bifreiðin utan í aðra bifreið sem ekið var í sömu átt. Bárust lögreglunni nokkrar tilkynningar um aksturslag þessarar bifreiðar en akstur hennar var stöðvaður í Þingholtinu nokkru seinna. Var ökumaðurinn grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu.

Hemmi Gunn fallinn frá