Justin Bieber eftirlýstur

Sagður hafa lamið ljósmyndara

Lögregla leitar nú kanadíska poppgoðsins Justin Bieber í tengslum við árás á ljósmyndara. Ljósmyndarinn heldur fram að stjarnan hafi ráðist á sig og í kjölfarið hafi hann upplifað brjóstverki.

Árásin er sögð hafa átt sér stað þegar ljósmyndarinn náði Bieber og kærustu hans, leikkonunni Selena Gomez, þar sem þau gengu út úr leikhúsi.

Lét Bieber sig hverfa af vettvangi en ljósmyndarinn þurfti aðhlynningu á næsta sjúkrahúsi. Vill lögregla nú ná í poppstjörnuna og fá hans hlið mála.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.