Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
21:28 › 28. maí 2012
Bresk kona sem féll ofan í gil skammt frá Seljalandsfossi er talsvert slösuð og þarf að fara í aðgerð samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni. Það er fréttastofa Ríkisútvarpsins sem greinir frá þessu en á vefsíðu ríkisfjölmiðilsins kemur fram að líðan konunnar sé stöðug og verður hún flutt á gjörgæsludeild síðar í kvöld.
Á fréttavef RÚV kemur fram að konan var á ferð við Hamragarða ásamt hópi ferðamanna þegar slysið varð. Féll konan fimm til sex metra og slasaðist illa. Hlaut hún meðal annars beinbrot og innvortis meiðsl á brjósti.

Hemmi Gunn fallinn frá