Mikil óánægja ríkir vegna ákvörðunar Landsbankans um að loka útibúum á landsbyggðinni og fækka þar um leið störfum. Afgreiðslum bankans í Súðavík, Flateyri, Króksfjarðarnesi, Grundarfirði, Eskifirði og Fáskrúðsfirði verður lokað 31. maí næstkomandi en 29 starfsmönnum verður sagt upp og 15 starfsmönnum verður boðinn starfslokasamningur vegna aldurs. Alls fækkar starfsmönnum um 50 við þessar breytingar og áætlar bankinn að spara 400 milljónir króna með þessari hagræðingu.
Fólk hefur látið óánægju sína í ljós með mismunandi hætti en einhver íbúi á Eskifirði tók sig til og dró fána Landsbankans í hálfa stöng við útibú bankans á Eskifirði, sem ásamt útibúinu á Fáskrúðsfirði, verður sameinaður útibúinu á Reyðarfirði.
Er mikil gremja sögð vera á meðal íbúa Eskifjarðar vegna þessarar breytingar að því er DV.is kemst næst og hafa einhverjir þeirra flutt viðskipti sín í aðrar bankastofnanir.
Þeirra á meðal er Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar. „Ég stofnaði reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja mig þangað,“ segir Jens Garðar sem segir ákvörðun bankans vera sérstaka í ljósi þess að ríkið á eignarhlut í honum. „Ríkið er á fullu að kynna fjölgun starfa og fjárfestinga og atvinnuuppbyggingu víðsvegar um land. Á sama tíma fer ríkisbanki með þessu fordæmi og segir upp fjölda starfsmanna og skerðir þjónustu víðsvegar um land. Manni finnst það ekki alveg fara saman,“ segir Jens Garðar í samtali við DV.is.
Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem fáni Landbankans er dreginn í hálfa stöng. Eftir að fregnir af hagræðingu bankans bárust í síðustu viku tók íbúi í Súðavík sig til og dró fána bankans í hálfa stöng.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum