Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:13 › 27. maí 2012
Lögreglunni barst tilkynning um vopnað rán á Klambratúni um klukkan þrjú í nótt. Þar segist maður um tvítugt hafa verið rændur af þremur aðilum vopnuðum hnífum og náðu þeir u lítilræði af peningum af manninum, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þá var þrisvar sinnum tilkynnt um líkamsárásir á skemmtistöðum í nótt. Voru þar ýmist dyraverðir að láta vita um árásir á sjálfa sig, eða aðrir að hringja inn vegna árása dyravarða á sig.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013