Björgunarsveitir af Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til leitar að pari sem var á göngu yfir Fimmvörðuháls en villtist á leið sinni niður í Þórsmörk. Fólkið hringdi sjálft til Neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð og voru björgunarsveitir kallaðar út klukkan rúmlega eitt í nótt.
Sendir voru hópar upp Hvannárgil og Kattahryggi þar sem vitað var að fólkið var komið niður fyrir keðjuna við Heljarkamb og því ekki þörf á leitarhópum upp frá Skógum. Björgunarsveitir fundu fólkið rúmum tveimur tímum eftir að leit hófst og var það þá statt á gönguleiðinni yfir Útigönguhöfða, nokkur hundruð metra frá Heljarkambi.
Var það í þokkalegu ástandi þrátt fyrir að hafa verið á göngu í 13 tíma enda ágætlega búið og vel nestað og var þeim því fylgt niður í Þórsmörk.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi