„Þetta er bara fáránlegt, róninn á Hlemmi sem drekkur daglega getur fengið líftryggingu en ég sem hætti að drekka fyrir mörgum árum og lifi mjög heilbrigðu lífi í dag fæ hana ekki,“ segir rúmlega þrítug kona sem er ein fjölmargra óvirkra alkóhólista sem DV hefur rætt við sem annaðhvort fá ekki líftryggingu eða hafa þurft að hafa mikið fyrir því að fá hana loksins. Ástæðan er sú að þeir eru alkóhólistar sem hafa leitað sér meðferðar við vandanum. Sumir hafa bara verið í áfengisneyslu en aðrir líka neytt eiturlyfja.
Það fólk sem DV ræddi við átti það þó sameiginlegt að nokkur tími var liðinn frá því að það leitaði sér meðferðar en átti samt sem áður í vanda með að fá líftryggingar. Þau líftryggingafyrirtæki sem DV talaði við sögðu hvert tilvik fyrir sig vera metið.
„Þetta er alþekkt innan edrúheimsins,“ segir konan, sem vill ekki láta nafns síns getið. Sjálf hætti hún að drekka fyrir rúmlega áratug, hún er með líftryggingu sem hún fékk eftir töluvert maus og nokkrar synjanir. Sambýlismanni hennar hafði verið synjað fjórum sinnum áður en hann fékk sína líftryggingu fyrr á þessu ári en hann hætti að drekka fyrir tæpum áratug.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum