Lögreglan lýsir eftir sex ára dreng

Veist þú hvar Jónatan er?

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Jónatani sem er 6 ára. Hann fór frá heimili sínu í Keflavík um kl. 8 í morgun, sunnudag. Drengurinn fór að heiman á meðan að móðir hans var sofandi.

Sjö lögreglumenn á fjórum lögreglubifreiðum, leita hans nú í Keflavík, en leit hófst um klukkan níu í morgun þegar ljóst var að hann var að hann var ekki hjá vinum eða vandamönnum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort björgunarsveitir verða kallaðar út til að aðstoða lögregluna.

Jónatan er ljóshærður og stór miðað við aldur, en ekki er vitað hvernig hann er klæddur.

Hann fór á hvítu og bláu Trek reiðhjóli og er hann ekki með hjálm.

Þeir sem vita hvar Jónatan er eða geta gefið upplýsingar vinsamlegast hafið samband við lögreglu í síma 420 1800.

Uppfært: Um hádegisbilið kom Jónatan í leitirnar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.