„Ég hef verið sakaður um margt en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum“

Ólafur Ragnar er ósáttur við pistil Rósu Guðrúnar Erlingsdóttur

„Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti og forseta frambjóðandi, á Facebook síðu sinni, um grein Rósu Guðrúnar Erlingsdóttur þar sem hún segir Ólaf gera lítið úr kyni Þóru Arnórsdóttur forsetaframbjóðanda.

„Innkomu forsetans í kosningabaráttuna mætti líkja við vel undirbúið og hannað leikrit eða „show" þar sem Ólafur Ragnar beinlínis varar þjóðina við því að kjósa Þóru Arnórsdóttur,“ skrifar stjórnmálafræðingurinn Rósa Guðrún Erlingsdóttir í aðsendri grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær. Þar fer hún yfir hún taktík forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar en hún segir orðræðu hans minna á vorið 1980 þegar Vigdís Finnbogadóttir var í framboði til embættis forseta Íslands en hún segir það sýnt að þegar Ólafur Ragnar beindi ummælum um „skrautdúkku“ til Þóru Arnórsdóttur.

Ólafur Ragnar segir að Rósa dylgi um það að umfjöllun hans um forsetaembættið sé dylgjuð. „Rósa Guðrún Erlingsdóttir, ræðumaður á fundi Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, skrifar á Vísir.is pistil þar sem hún dylgjar um að umfjöllun mín um forsetaembættið sé kynjuð og að ég sé að gera lítið úr Þóru sem konu. Þetta er sérkennilegur málflutningur. Ég hef þvert á móti sýnt Þóru Arnórsdóttur virðingu með því að ræða á málefnalegum grundvelli þau sjónarmið sem hún hefur sett fram um forsetaembættið. Það er í anda jafnréttis og hvatningar minnar um að umræðan sé málefnaleg og kurteis, “ segir Ólafur og bætir við: „Engir hafa átt jafn ríkan þátt í að móta viðhorf mín og skoðanir en hópur sjálfstæðra og sterkra kvenna: Guðrún Katrín, Tinna, Dalla, Dorrit og fleiri úr fjölskyldunni.“

Tengdar fréttir

Segir Ólaf gera lítið úr kyni Þóru


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.