Daðrar við kviðdómara

„Hún brosir til hans, hann brosir til baka. Hún flissar – hann roðnar“

John Edwards, fyrrverandi öldungadeildar þingmaður í Bandaríkjunum og einn vara kviðdómandi sem dæmir í máli hans hafa sést daðra í réttarsal. Réttarhöld standa nú yfir vegna gruns um að Edwards hafi notað rúmlega eina milljón dollara af fé sem safnaðist í kosningasjóð hans til að fela ástarsamband sitt sem stóð yfir á meðan að hann reyndi að fá tilnefningu demókrata til þess að verða forseti Bandaríkjanna árin 2007-2008.

Málið byggir á tveggja ára rannsókn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, sem telur að Edwards hafi notað féð til að villa um fyrir blaðamönnum og sinni eigin fjölskyldu, til þess að tryggja að ekki kæmist upp um ástarsamband hans og Rielle Hunter, konu sem hann eignaðist barn með. Saksóknarar halda því fram að Edwards hafi notað peningana til að leyna staðreyndum sem myndu koma sér illa fyrir forsetaframboð hans. Verði Edwards sakfelldur má hann í versta falli búast við 30 ára fangelsisvist og að verða dæmdur til að greiða 1,5 milljón dali í sekt. Ólíklegt er að hann hljóti svo harða refsingu.

Hinsvegar segja lögmenn Edwards að fjárframlögin hafi ekki verið pólitísk framlög heldur gjafir. Þær fékk öldungadeildar þingmaðurinn í þeim tilgangi að hjálpa honum að leyna framhjáhaldinu fyrir konunni sinni. Eiginkona Edwards, Elizabeth Edwards, lést árið 2010 eftir langa og erfiða baráttu við brjóstakrabbamein.

Málið er nú í höndum kviðdómenda sem hafa nú nokkra daga til að kveða upp dóm sinn. Tólf kviðdómendur voru skipaðir en þar að auki voru fjórir vara kviðdómendur skipaðir ef til þess kæmi að fjarlægja þyrfti einn hinna. Einn þeirra og John Edwards munu hafa, með látbragði sínu, daðrað við réttarhöldin.

Greinir ABC sjónvarpsstöðin frá því að það sé augljós spenna þeirra á milli. „Það hefur verið ómögulegt að hundsa spennuna milli Edwards og eins kvenkyns vara kviðdómenda, sem er aðlaðandi ung kona með svart hár, hún virðist hafa verið að daðra við Edwards í nokkra daga. Kviðdómarinn er sú sem hóf daðrið. Hún brosir til hans, hann brosir til baka. Hún flissar – hann roðnar.“

Þá greinir Washington Post frá því sama. „Einn vara kviðdómandinn, aðlaðandi ung kona, hefur sést brosa til Edwards og fikta í hári sínu á daðursaman hátt. Á föstudaginn klæddist hún rauðum bol, með einum hlýra og sýndi aðra öxl sína,“ segir blaðið.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.