„Skýringin kann að vera ungur aldur Gretu Salóme“

Andrea veltir fyrir sér ummælum Gretu Salóme

„Skýringin kann að vera ungur aldur Grétu Salóme, ég veit það ekki,“ segir forsetaframbjóðandinn Andrea Ólafsdóttir í pistli á heimasíðu sinni sem nefnist Mannréttindabrot ekki hluti af þessari keppni? – ég gef mannréttindum tólf stig.

Þar segist Andrea hafa ákveðið í kvöld að láta athafnir fylgja orðum sínum þegar kemur að mannréttindum og veltir hún fyrir sér ummælum höfundar og flytjanda framlags Íslendinga í Eurovison í ár, Gretu Salóme, um að mannréttindabrot séu ekki hluti af keppninni.

Segir Andrea í pistli það mögulegt að afstaða Gretu Salóme sé vegna ungs aldurs hennar.

„Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti? Hvenær er eiginlega rétti tíminn til að standa upp fyrir bræður okkar og systur ef ekki einmitt þarna á þessari stundu? Eru mannréttindi bara fallegur og þægilegur bókstafur í sáttmála? Öll samfélög og allur heimurinn er einn stór pólitískur vettvangur. Ætli pólitík hafi verið áætlaður hluti af strætóferð Rosu Parks þegar hún neitaði að standa upp fyrir hvítum manni,“ spyr Andrea í pistli sínum sem lesa má hér.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.