ÓB gefur 20 króna afslátt af eldsneyti vegna gengis Íslands í Eurovision

Tilboðið virkt á miðnætti

Það verður tuttugu krónu afsláttur af eldsneyti á ÓB-stöðvum frá miðnætti. Tilboðið stendur í sólarhring fyrir þá sem eru með ÓB-lykil en fyrirtækið lofaði því að veita afslátt eftir því í hvaða sæti Ísland myndi enda Í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva Eurovision. 19. – 20. sætið var staðreyndin og því verður 20 króna afsláttur af eldsneyti á ÓB-stöðvum fyrir þá sem eru með ÓB-lykil, að sögn markaðsstjóra Olís, sem rekur ÓB, Sigurðar K. Pálssonar.

„Það verður 20 króna afsláttur. Við vonumst til að þetta verði orðið virkt,“ segir Sigurður í samtali við DV.is. Ef bensínlaust verður á ÓB-stöðvum geta handhafar ÓB-lyklanna dælt eldsneyti á Olísstöðvum.

„Við vorum nú bara að reyna að búa til stemningu í kringum ÓB og Eurovision,“ segir Sigurður K. aðspurður hvort þeir hjá ÓB og Olís hafi verið bjartsýnir á árangur Íslendinga í Eurovision. „Við höfum gert þetta áður í kringum stórmót í handbolta. Þannig að við höfum leikið okkur að þessu áður og fellur þetta vel að markaðsherferð ÓB,“ segir Sigurður.

Ísland hafnaði sem fyrr segir í 19-20. sæti með 46 stig en það voru Svíar sem unnu þessa keppni með miklum yfirburðum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.