Það voru Svíar sem unnu söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva Eurovision í ár með laginu Euphoria sem söngkonan Loreen flutti með miklum glæsibrag á sviði í Bakú í Aserbaídsjan í kvöld. Það má í raun segja að hún hafi rótburstað þessa keppni því hún hlaut 372 stig og sigurinn því frekar afgerandi. Hún fékk stig frá öllum þjóðum nema Ítölum.
Loreen heitir réttu nafni Lorine Zineb Noka Talhaoui en hún fæddist í Stokkhólmi í Svíðþjóð fyrir tæpum 29 árum.
Báðir foreldrar Loreen eru frá Marokkó en hún varð fyrst þekkt í Svíþjóð þegar hún tók þátt í sænsku Idol-keppninni árið 2004 þar sem hún hafnaði í fjórða sæti.
Loreen tók þátt í undankeppni Svíþjóðar fyrir Eurovision í fyrsta skiptið árið 2011 þar sem hún söng lagið My Heart is Refusing Me sem hún samdi ásamt Moh Denebi og Björn Djupström. Lagið varð í fjórða sæti í undanúrslitum keppninnar. Lagið hlaut ekki náð í keppninni en fékk þó töluverða útvarpsspilun.
Flestir vita að hún vann undankeppni Svía í ár með lagið Euphoria.
Loreen vakti töluverða athygli í Bakú fyrir að vera eini keppandinn sem steig fram og ræddi mannréttindabrot þar í landi.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi