Hóf skothríð á þaki veitingarstaðar

Einn látinn og átta særðir eftir að átján ára piltur lét skotin dynja á vegfarendum

Átján ára kona er látin og átta eru særðir, þar af tveir alvarlega, þegar karlmaður vopnaður byssu hóf skothríð nálægt brautarstöðinni í miðbæ bæjarins Hyvinge norður af Helsingfors í Finnlandi um klukkan tvö í nótt. Ein þeirra særðu er lögreglukona, sem er aðeins 23 ára gömul.

Maðurinn mun hafa verið á þaki veitingastaðar þegar hann hóf skothríðina. Hann miðaði, að sögn sjónarvotta, á alla sem áttu leið hjá og skaut hann að minnsta kosti tuttugu skotum að þeim. Maðurinn var klæddur í felulitaklæðnað og var sagður nokkuð unglegur.

Lögregla telur sig hafa manninn í haldi, en hún handtók átján ára mann nú undir morgun sem var vopnaður tveimur byssum. Fjölmargar ábendingar bárust frá almenningi um það hvar og hver maðurinn sem um ræðir væri. Hann sýndi lögreglu ekki mótþróa þegar hann var handtekinn. Hann verður yfirheyrður í dag, en ekki liggur fyrir hvort hann hafði vitorðsmann sér til stuðnings.

Við berum frekari fréttir þegar þær berast.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.