„Hins vegar hef ég aldrei séð svo háa greiðslu“

Lektor segist aldrei hafa heyrt um jafn háa greiðslu líkt og fyrrverandi starfsmenn sérstaks saksóknara þáðu

„Hins vegar hef ég aldrei séð svo háa greiðslu, eða háa þóknun, fyrir skýrslu af þessu tagi,“ segir Ása Ólafsdóttir, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands, í samtali við fréttastofu Sjónvarpsins um þóknun sem fyrrverandi starfsmenn embættis sérstaks saksóknara, þeir Guðmundur Haukur Gunnarsson og Jón Óttar Ólafsson, þáðu fyrir að afhenda þrotabúi Milestone gögn sem þeir höfðu ekki heimild til að láta af hendi.

Sérstakur saksóknari hefur kært starfsmennina tvo fyrir brot á þagnarskyldu en sérstakur saksóknari hefur rökstuddan grun um að mennirnir hafi unnið skýrslu fyrir skiptastjóra Milestone upp úr gögnum sem þeim hafi verið óheimilt að afhenda.

Þeir þáðu þrjátíu milljónir króna fyrir að vinna skýrsluna sem er sautján blaðsíður. Í samtali við RÚV segist Ása ekki efast um að skýrslan sé ítarleg og vel unnin.

„Hins vegar hef ég aldrei séð svo háa greiðslu, eða háa þóknun, fyrir skýrslu af þessu tagi,“ segir Ása við RÚV.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.